Fyrsta skref Vinnumálastofnunar
Fyrsta Græna skrefið hefur nú verið stigið í höfuðstöðvum Vinnumálastofnunar í Reykjavík. Stefnan er svo sett á landsbyggðina í framhaldinu en starfsstöðvar stofnunarinnar eru staðsettar vítt og breitt um landið. Umhverfisteymi Vinnumálastofnunar hefur gengið vasklega til verks og lagt áherslu á að kynna verkefnið vel fyrir starfsmönnum og taka flokkunarmálin föstum tökum. Á döfinni hjá þeim er m.a. að fá kynningu frá Gámaþjónustunni svo þau geti lagt sig enn betur fram við flokkunina. Til hamingju með árangurinn Vinnumálastofnun og gangi ykkur vel með framhaldið!

Á myndinni er teymi Grænna skrefa hjá VMST, Valdimar K. Guðlaugsson, verkefnastjóri, Sigmundur Arnórsson, Unnur Sverrisdóttir, forstjóri, Herborg Haraldsdóttir, Guðrún Agða Aðalheiðardóttir, Hrefna Guðmundsdóttir og Birgitta Steingrímsdóttir hjá Umhverfisstofnun. Á myndina vantar Hugrúnu Jóhannesdóttur sem einnig er í teyminu.
Umbra stígur skref 2 og 3
Umbra – þjónustumiðstöð Stjórnarráðsins, áður Rekstrarfélag Stjórnarráðsins, hefur nú fengið viðurkenningu fyrir að stíga skref 2 og 3. Innleiðing Grænu skrefanna hefur gengið smurt fyrir sig hjá Umbru, enda umhverfisstarf þegar hafið hjá stofnuninni er hún skráði sig til leiks í verkefnið. Umbra sinnir upplýsingatæknimálum og ýmsum sameiginlegum rekstrarþáttum ráðuneytanna og hefur því tækifæri til að knýja fram mikilvægar breytingar í rekstri Stjórnarráðsins. T.a.m. hefur verið tekin ákvörðun um að skipta öllum ráðherrabílum og snattbíl stofnunarinnar út fyrir rafbíla á næstu tveimur árum. Góð snyrtiaðstaða er fyrir starfsfólk sem kemur hjólandi og gangandi til vinnu og jafnframt hefur starfsfólk aðgang að tveimur rafhjólum sem þeim býðst að fá að láni í allt að 3 daga í viðleitni til að kynna hjólin fyrir starfsmönnum og hvetja til notkunar þeirra. Umbra er að mestu leyti plastpokalaus stofnun og auk þess að notast við lífbrjótanlega poka fyrir lífrænan og blandaðan úrgang hafa þau brugðið á það ráð að kaupa fjölnota poka undir pappír. Samkvæmt Grænu bókhaldi var endurvinnsluhlutfall Umbru 72% fyrir árið 2018 og verður spennandi að sjá hvort hlutfallið verði ekki enn hærra fyrir árið 2019. Til hamingju með glæsilegan árangur og metnaðarfullt umhverfisstarf starfsfólk Umbru!

Birgitta Steingrímsdóttir, starfsmaður Umhverfisstofnunar, og starfsmenn Umbru, þau Sigurlaug Bjarnadóttir, Ólafur Páll Jónsson og Kristbjörn Þór Þorbjörnsson, sem skipa umhverfisteymi stofnunarinnar.

Sniðug lausn hjá Umbru – fjölnota pokar í flokkunartunnurnar.
Héraðssaksóknari fyrsta undirstofnun Dómsmálaráðuneytis með Grænt skref
Í dag hlaut embætti Héraðssaksóknara viðurkenningu fyrir að stíga fyrsta Græna skrefið. Það er mikill metnaður fyrir verkefninu innanhúss og starfar öflugt þriggja manna teymi að innleiðingu þess. Það sem skiptir ekki síður máli er stuðningur yfirstjórnar sem svo sannarlega er til staðar hjá Héraðssaksóknara og auðveldar allar breytingar. Ólafur Þór Hauksson, héraðssaksóknari, sagðist við afhendinguna í dag vona að Grænu skrefin stuðli að aukinni starfsánægju og bætti við að verkefnið geti leitt til minni rekstrarkostnaðar hjá embættinu. Starfsmenn embættisins hafa vakið athygli undanfarið þar sem þeir þeysast á milli staða á rafhlaupahjóli, en kaupin á því voru einmitt liður í Grænu skrefunum. Til hamingju með árangurinn og gangi ykkur vel með framhaldið!

Birgitta Steingrímsdóttir, starfsmaður Umhverfisstofnunar, og Ólafur Þór Hauksson, héraðssaksóknari.

Kolbrún Benediktsdóttir, varahéraðssaksóknari, nýtir sér rafhlaupahjól embættisins til að fara á milli staða í miðbænum. Að hennar sögn er hlaupahjólið bæði praktískur og umhverfisvænn ferðamáti (og örugglega mjög skemmtilegur í þokkabót!) (Mynd: Vísir).
Velkomin í hópinn, Fjársýsla ríkisins!
Fjársýsla ríkisins búin að stíga sitt fyrsta Græna skref! Þær Ragnheiður Gunnarsdóttir forstöðumaður og Vilborg Hólmjárn hafa umsjón með verkefninu og stefna á að klára annað skref fyrir áramót, enda góður stuðningur innhúss. Alveg til fyrirmyndar!

Á myndinni eru Hildur Harðardóttir, Umhverfisstofnun, ásamt Ragnheiði K. Gunnarsdóttur og Vilborgu Hólmjárn hjá Fjársýslu ríkisins.
Annað skref Hafrannsóknastofnunar
Við óskum Hafrannsóknastofnun til hamingju með að hafa lokið Grænu skrefi nr. 2 af 5. Lísa Anne Libungan á Uppsjávarlífríkissviði tók við skrefinu en hún situr í Umhverfisnefnd Hafró. Stofnunin sýnir vilja í verki og að eigin frumkvæði gróðursettu þau nú í vor 77 tré í Heiðmörk. Þar eiga þau reit sem þau kalla Brimgarð og gerðu starfsmenn og fjölskyldur sér glaðan dag, grilluðu og plöntuðu trjám með krökkunum sínum í yndislegu veðri. Framtakið verður endurtekið næsta vor!




Evrópsk samgönguvika er hafin
Evrópsk samgönguvika stendur yfir dagana 16.-22. september. Markmið vikunnar er að kynna íbúum í þéttbýli samgöngumáta sem allt í senn eru vistvænir, hagkvæmir og bæta heilsu fólks um leið og þeir hafa jákvæð áhrif á umhverfi og andrúmsloft. Við hvetjum stofnanir til nýta tækifærið þessa vikuna og kynna kosti vistvænna samgöngumáta fyrir starfsfólki sínu. Er einhver starfsmaður innanhúss sem getur deilt reynslu sinni af því að hjóla, ganga eða taka strætó í og úr vinnu? Væri hægt að fá kynningu á hjólasamgöngum í hádegismat eða á starfsmannafundi? Er hægt að setja upp keppni innanhúss, t.d. hvaða deild kemur oftast með vistvænum hætti til/frá vinnu þessa vikuna eða hvaða deild kemur með frumlegasta hætti til vinnu? Endilega virkjið hugmyndaflugið, klæðið ykkur vel og nýtið ykkur Evrópska samgönguviku til þess að upplifa kosti vistvænna samgöngumáta.
Á vef Umhverfisstofnunar er hægt að kynna sér kosti vistvænna samgangna nánar og hér eru allar helstu upplýsingar um samgönguvikuna.
Öll skrefin í höfn hjá Landsvirkjun
Landsvirkjun hefur nú lokið við að innleiða öll fimm Grænu skrefin í höfuðstöðvum sínum á Háaleitisbraut. Greinilegt er að bakvið metnaðarfullt umhverfisstarf Landsvirkjunar er samstilltur og drífandi hópur af öllum sviðum rekstursins sem lætur verkin tala og velta við hverjum steini. Við óskum Landsvirkjun innilega til hamingju með áfangann!
Á myndinn eru frá vinstri: Ingvar Sigurðsson matreiðslumeistari; Sæmundur Pálsson og Kjartan Viðarsson umsjónarmenn hússins; Ingibjörg Yrsa Ellertsdóttir og Ólöf Lovísa Jóhannsdóttir umhverfisdeild; og Hildur Harðardóttir hjá Umhverfisstofnun.
Mötuneyti til fyrirmyndar
Það er gaman að sjá hvað mörg mötuneyti eru farin að vanda til verka þegar kemur að matarsóun, endurvinnslu og að bjóða uppá græna valkosti og þ.a.l. minnka framboð af rauðu kjöti. Í mötuneyti Landsvirkjunar á Háaleitisbraut stendur Ingvar Sigurðsson kokkur vaktina. Ingvar er snillingur í því að fullnýta hráefni og hann sér til þess að allur úrgangur sem fellur til í eldhúsinu sé rétt flokkaður til endurvinnslu. Ingvar býður starfsfólki að taka með sér afganga heim í margnota matarílátum sem það kemur sjálft með. En þá afganga sem eftir verða hikar Ingvar ekki við að nýta í nýjan og girnilegan rétt. Restar gærdagsins verða því kræsingar á ný! Einnig er gaman að segja frá því að vegan úrvalið í hlaðborðinu rýkur út og eftirspurnin eykst stöðugt. 
Tvö ráðuneyti fá viðurkenningu fyrir þrjú græn skref
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið og dómsmálaráðuneytið hafa nú innleitt fyrstu þrjú grænu skrefin á einu bretti. Ráðuneytin fengu afhenta viðurkenningu fyrir árangurinn í dag og voru að vonum stolt af sér og sínum. Við óskum ykkur til hamingju og gangi ykkur vel með framhaldið!

Á myndinni eru Dröfn Gunnarsdóttir hjá samgöngu- og sveitastjórnarráðuneytinu, Birgitta Steingrímsdóttir starfsmaður Umhverfisstofnunar og Bergur Sigurjónsson hjá Dómsmálaráðuneytinu.
Heyrnar- og talmeinastöð Íslands tekur þátt í Grænum skrefum
Með skráningu sinni er Heyrnar- og talmeinastöð íslands 72. stofnunin til að taka þátt í Grænu skrefunum. 22 starfsmenn starfa hjá Heyrnar- og talmeinastöðinni og hlökkum við mikið til að feta með þeim skrefin góðu.







