Sumarfrágangur
Það er alltaf gott að hafa nokkur atriði í huga þegar við förum í frí. Gætum þess að vera ekki að nýta auðlindirnar okkar (hiti, rafmagn) á meðan enginn er að „njóta“ þeirra 🙂
This author has yet to write their bio.Meanwhile lets just say that we are proud graenskref contributed a whooping 362 entries.
Það er alltaf gott að hafa nokkur atriði í huga þegar við förum í frí. Gætum þess að vera ekki að nýta auðlindirnar okkar (hiti, rafmagn) á meðan enginn er að „njóta“ þeirra 🙂
Þau voru eldsnögg í Vínbúðinni í Smáralind að næla sér í annað Græna skrefið. Til hamingju með flottan árangur 🙂
Starfsmenn Vínbúðanna á Flúðum, Hellu og Hvolsvelli standa sig með stakri prýði og eru komnar með viðurkenningu fyrir tvö fyrstu Grænu skrefin. Í spjalli við Maríu á Flúðum sagði hún að verkefnið hefði gert það að verkum að hún hefur fært þessa hugsun inn á heimilið sitt. Nýting í Vínbúðunum og ÁTVR er ofsalega mikil og fer […]
Vínbúðin í Smáralind náði sínu fyrsta Græna skrefi og halda nú ótrauð áfram í næstu skrefin. Frábær vinna hjá flottum hópi starfsfólks 🙂
Í dag á afmælishátíð Landmælinga Íslands, afhenti Sigrún Magnúsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, Magnúsi Guðmundssyni forstjóra LMÍ, viðurkenningu fyrir fjórða og fimmta Græna skrefið. LMÍ var ein af þeim stofnunum sem tóku þátt í að þróa og aðlaga verkefnið að ríkisstofnunum árið 2014 og var einnig ein þeirra fyrstu til að fá fyrsta Græna skrefið. Nú einu […]
Nú hefur Egilsstaðaflugvöllur lokið vinnu við fyrsta Græna skrefið og fékk í dag viðurkenningu þess efnis. Flott vinna hjá þeim öllum. Á myndinni eru Benedikt Waren hjá Isavia (vinstra megin) og Jóhann G. Gunnarsson, Umhverfisstofnun.
Nú eru Vínbúðirnar í Grindavík og Reykjanesbæ komnar með tvö Græn skref en það er eftirtektarvert hversu vel Vínbúðirnar standa sig í að koma í veg fyrir úrgang en hjá þeim fer nær allt í endurvinnslu eða endurnýtingu. Mjög vel gert hjá þeim.
Starfsstöð Isavia, Reykjavík flugturn og fræðslumiðstöð hafa lokið 2 Græna skrefinu. Ekki nóg með að fá viðurkenningu Grænna skrefa þá fékk starfsstöðin líka viðurkenningu frá Isavia fyrir að vera fyrsta starfsstöðin til að innleiða skref 2. Þau eru ákveðin í að vinna þetta hratt og vel og eru strax byrjuð að skoða þriðja skrefið. Til […]
Í stað þess að henda kaffikorginum í ruslið eða láta hann fara með lífræna hlutanum í moltugerð, af hverju ekki að nota þetta gæðaefni beint í garðinn og á pottaplönturnar? Þá er hægt að safna kaffikorgi sérstaklega og bjóða starfsfólki að taka hann með sér heim fyrir garðinn.Kaffikorgurinn hjálpar til við að halda raka í jarðveginum svo […]
Nú er flugstjórnarmiðstöð Isavia búin að næla sér í viðurkenningu Grænna skrefa. Á myndinni eru Hrönn Ingólfsdóttir, Helga R. Eyjólfsdóttir, Rúnar Guðbrandsson, Hólmfríður Þorsteinsdóttir og Þórdís Sigurðardóttir. Innilega til hamingju með frábæran árangur 🙂