Vínbúðin í Skeifunni náði öllum Grænu skrefunum
Vínbúðin tók Grænu skrefin með áhlaupi og kláraði þau öll í einu. Innilega til hamingju með árangurinn 🙂
This author has yet to write their bio.Meanwhile lets just say that we are proud graenskref contributed a whooping 362 entries.
Vínbúðin tók Grænu skrefin með áhlaupi og kláraði þau öll í einu. Innilega til hamingju með árangurinn 🙂
Ofurhresst starfsfólk Vínbúðarinnar tók á móti fulltrúa Grænna skrefa í dag og viðurkenningu fyrir að hafa lokið innleiðingu á öllum Grænu skrefunum. Árið 2015 var farið í töluverðar breytingar á húsnæði Vínbúðarinnar og meðal annars skipt út flúrperum fyrir LED ljósaperur. Á árinu 2016 dró þar af leiðandi úr orkunotkun um 40%.
Sárþjáðan hval þurfti að aflífa í Noregi á dögunum vegna þess að magi hans var fullur af plasti og rusli. Eiginleikar plasts eru þannig að endingartími þess er yfirleitt nokkuð mikill, það er slitsterkt svo það hverfur ekki eða eyðist heldur brotnar í smærri og smærri hluta í náttúrunni (örplast). Einnig er algengt að dýr […]
Innilega til hamingju með árangurinn, nú er bara að viðhalda góðri vinnu og halda ótrauð áfram.
Stofnun Vilhjálms Stefánssonar var að fá sitt þriðja Græna skref staðfest í dag. Innilega til hamingju með áfangann 🙂
Við bjóðum Listasafn Íslands velkomin í hóp grænna stofnana, hlökkum til að vinna með þeim 🙂
Vínbúðin í Hveragerði fékk í morgun viðurkenningu fyrir að ljúka síðustu þremur Grænu skrefunum. Nú er innleiðingarferlinu lokið hjá þeim og við tekur að viðhalda því góða starfi sem þær hafa unnið. Endurnýting og endurvinnsla fær stóran sess í starfi þeirra og skila þær jafnvel bréfaklemmum aftur í bankann. Vel gert og til hamingju 🙂
Ef við getum sent út skilaboð með auðveldum og einföldum hætti þá eigum við að drífa í því. Við eigum ekki öll að vera í því að finna upp hjólið og þá er mikilvægt að notast við hluti sem einhver annar hefur gert eða gefur okkur hugmyndir. Umhverfisnefndin hjá fjármála- og efnahagsráðuneyti nýtir t.d. leiðbeiningar […]
Aðeins einum mánuði eftir að Flugfjarskipti fengu viðurkenningu fyrir fyrsta og annað Græna skrefið eru þau búin að ljúka þriðja skrefinu með glæsibrag. Mikill hugur er í starfsfólkinu að ljúka innleiðingu skrefanna fljótt og vel og þá helst í vor. Innilega til hamingju með árangurinn 🙂
Samgöngustofa er 37 stofnunin sem tekur þátt í verkefninu með okkur. Við hlökkum mikið til að vinna með öllum 140 starfsmönnunum 🙂