Veljum grænu leiðina

Í dag hefst Evrópsk samgönguvika og þema ársins er Veljum grænu leiðina! 

Frá árinu 2002 hafa borgir og bæir á Íslandi tekið þátt í samstilltu átaki sveitarfélaga í Evrópu um að ýta undir sjálfbærar samgöngur. Yfirskrift átaksins er Evrópsk Samgönguvika og er hún haldin 16. – 22. september ár hvert. Markmið vikunnar er að kynna íbúum í þéttbýli samgöngumáta sem allt í senn eru vistvænir, hagkvæmir og bæta heilsu fólks um leið og þeir hafa jákvæð áhrif á umhverfi og andrúmsloft. Fyrirtæki, stofnanir og félagasamtök geta einnig skráð til leiks einstaka viðburði eða aðgerðir sem ætlað er að ýta undir vistvænar samgöngur. Yfirskrift þessa verkefnis er MobilityActions á ensku sem hefur verið þýtt sem Samgönguplús á íslensku.

Frekari upplýsingar um Evrópska samgönguviku á Íslandi má finna á Facebook-síðu vikunnar.

Við í Grænu skrefunum hvetjum að sjálfsögðu alla til þess að setja virkar samgöngur – hjól, göngu, skutlur og almenningssamgöngur – í öndvegi þessa vikuna sem og aðrar.