Upptaka og glærur frá Vorfundi
Vorfundur Grænna skrefa fór fram á Teams þann 20. maí síðastliðinn. Þátttaka var afar góð en um 100 manns sóttu fundinn. Nú þegar við höfum prófað þennan vettvang til miðlunar sjáum við fram á að nýta hann enn betur til að koma upplýsingum um verkefnið á framfæri.
Líkt og komið var inná á fundinum hvetjum við ykkur til að fylgja okkur á Facebook og kynna ykkur hópana okkar tvo:
- Græn skref – Samráðsvettvangur
Vettvangur fyrir stofnanir í Grænum skrefum til að leita ráða hjá hvorri annarri og deila með sér hugmyndum af góðum leiðum og lausnum til að ljúka aðgerðum. - Græn skref – Nytjamarkaður
Nytjamarkaður fyrir ríkisstofnanir til að koma hlutum aftur í notkun hjá öðrum. Aðeins ríkisstofnanir geta auglýst hluti en allir geta keypt eða fengið hlutina.
Hér að neðan má sjá upptöku af fundinum og nálgast erindin á pdf formi.
Fréttir af Grænu skrefunum – Hildur Harðardóttir
Grænt bókhald og Gagnagáttin – Birgitta Steingrímsdóttir
Loftslagsstefna og leiðbeiningar Umhverfisstofnunar – Ásdís Nína Magnúsdóttir