Grænt upplýsingaborð fyrir tengiliði Grænna skrefa

Við endurtökum leikinn og bjóðum tengiliðum Grænna skrefa að nýta sér opið upplýsingaborð sem haldið verður næsta mánudag, þann 6. desember, milli kl. 10-12. Tengiliðir hafa fengið boð á upplýsingaborðið í tölvupósti þar sem hægt er að skrá sig inn á upplýsingaborðið á fyrrgreindum tíma.

Innan þessa tímaramma mun starfsfólk Grænna skrefa vera tilbúið að svara öllum spurningum er við koma Grænu skrefunum, loftslagsstefnum og aðgerðaráætlunun. Opið upplýsingaborð (e. help-desk) er með því fyrirkomulagi að fólk getur farið inn og út eftir þörfum og ekki verður nein skipulögð dagskrá, tengiliðum gefst einfaldlega tækifæri á að spyrja að því sem kann að vefjast fyrir þeim í innleiðingu Grænna skrefa og loftslagsstefnugerð.

Við hvetjum tengiliði Grænna skrefa til að nýta þetta tækifæri til að spyrja spurninga og við minnum á að allir ríkisaðilar eiga að vera búin að setja sér loftslagsstefnu og aðgerðaáætlun fyrir árslok og samkvæmt loftslagsstefnu Stjórnarráðsins eiga allar stofnanir að vera búnar með öll skrefin á sama tíma.