Á fimmta þúsund umhverfisvænar breytingar hjá ríkinu

Starfsstöðvar ríkisstofnana hafa stigið 174 Græn skref á árinu.  Hvert skref inniheldur í kringum 30 til 40 aðgerðir svo  að baki þessum árangri liggi á fimmta þúsund umhverfisvænar aðgerðir, bæði stórar og smáar.

Á meðal umbóta hjá stofnunum má nefna bætta aðstöðu fyrir hjólreiðafólk, mötuneyti sem auka framboð sitt af mat með lægra kolefnisspor, þátttöku í ruslaplokki, breytingu yfir í umhverfisvottaðan klósettpappír og svo mætti lengi telja.

Eftirfarandi stofnanir hafa stigið Græn skref á árinu:

 

  • Barnaverndarstofa
  • Fiskistofa
  • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
  • Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra
  • Fjölbrautaskóli Snæfellinga
  • Fjölbrautaskóli Suðurlands
  • Fjölbrautaskóli Suðurnesja
  • Fjölbrautaskóli Vesturlands
  • Fjölbrautaskólinn í Garðabæ
  • Framhaldsskólinn á Húsavík
  • Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum
  • Gljúfrasteinn: hús skáldsins
  • Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús
  • Háskóli Íslands
  • Heilbrigðisstofnun Austurlands
  • Hugverkastofan
  • Húsnæðis- og mannvirkjastofnun
  • Íslandspóstur
  • Jafnréttisstofa
  • Kvikmyndasafn Íslands
  • Landhelgisgæsla Íslands
  • Lyfjastofnun
  • Menntaskólinn á Akureyri
  • Menntaskólinn á Tröllaskaga
  • Menntaskólinn í Kópavogi
  • Menntaskólinn við Hamrahlíð
  • Menntaskólinn við Sund
  • Náttúrufræðistofnun Íslands
  • Náttúruminjasafn Íslands
  • Samgöngustofa
  • Skatturinn
  • Skógræktin
  • Stofnun Vilhjálms Stefánssonar
  • Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra
  • Sýslumaðurinn á Suðurnesjum
  • Sýslumaðurinn á Vesturlandi
  • Tryggingastofnun Ríkisins
  • Umboðsmaður barna
  • Umboðsmaður skuldara
  • Utanríkisráðuneytið
  • Vatnajökulsþjóðgarður
  • Verkmenntaskólinn á Akureyri
  • Vinnumálastofnun
  • Þjóðgarðurinn á Þingvöllum
  • Þjóðskjalasafn Íslands

 

Við óskum þeim til hamingju með árangurinn!

Nánar um Græn skref