Á fimmta þúsund umhverfisvænar breytingar hjá ríkinu
Starfsstöðvar ríkisstofnana hafa stigið 174 Græn skref á árinu. Hvert skref inniheldur í kringum 30 til 40 aðgerðir svo að baki þessum árangri liggi á fimmta þúsund umhverfisvænar aðgerðir, bæði stórar og smáar.
Á meðal umbóta hjá stofnunum má nefna bætta aðstöðu fyrir hjólreiðafólk, mötuneyti sem auka framboð sitt af mat með lægra kolefnisspor, þátttöku í ruslaplokki, breytingu yfir í umhverfisvottaðan klósettpappír og svo mætti lengi telja.
Eftirfarandi stofnanir hafa stigið Græn skref á árinu:
- Barnaverndarstofa
- Fiskistofa
- Fjármála- og efnahagsráðuneytið
- Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra
- Fjölbrautaskóli Snæfellinga
- Fjölbrautaskóli Suðurlands
- Fjölbrautaskóli Suðurnesja
- Fjölbrautaskóli Vesturlands
- Fjölbrautaskólinn í Garðabæ
- Framhaldsskólinn á Húsavík
- Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum
- Gljúfrasteinn: hús skáldsins
- Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús
- Háskóli Íslands
- Heilbrigðisstofnun Austurlands
- Hugverkastofan
- Húsnæðis- og mannvirkjastofnun
- Íslandspóstur
- Jafnréttisstofa
- Kvikmyndasafn Íslands
- Landhelgisgæsla Íslands
- Lyfjastofnun
- Menntaskólinn á Akureyri
- Menntaskólinn á Tröllaskaga
- Menntaskólinn í Kópavogi
- Menntaskólinn við Hamrahlíð
- Menntaskólinn við Sund
- Náttúrufræðistofnun Íslands
- Náttúruminjasafn Íslands
- Samgöngustofa
- Skatturinn
- Skógræktin
- Stofnun Vilhjálms Stefánssonar
- Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra
- Sýslumaðurinn á Suðurnesjum
- Sýslumaðurinn á Vesturlandi
- Tryggingastofnun Ríkisins
- Umboðsmaður barna
- Umboðsmaður skuldara
- Utanríkisráðuneytið
- Vatnajökulsþjóðgarður
- Verkmenntaskólinn á Akureyri
- Vinnumálastofnun
- Þjóðgarðurinn á Þingvöllum
- Þjóðskjalasafn Íslands
Við óskum þeim til hamingju með árangurinn!