Erindi frá morgunverðarfundi Grænna skrefa
Okkur langar að þakka öllum sem tóku þátt í morgunverðarfundinum og þakka þeim sem gáfu sér tíma til að halda fyrir okkur fyrirlestra og deila reynslu sinni. Það er alltaf gaman að eiga einn svona uppskerufund á hverju ári með ykkur öllum. Stofnanir hafa staðið sig mjög vel í ár, 63 komnar í verkefnið með yfir 200 starfsstöðvar. Áskoranirnar sem við stöndum frammi fyrir eru risavaxnar og því er ekki eftir neinu að bíða en að byrja að búta verkefnið niður með Grænum skrefum og innleiða bætta umhverfishegðun. Hér má sjá erindin sem voru á fundinum og vonandi veita ykkur innblástur til að halda áfram og gera betur í dag en í gær.
Grænu skrefin 2018 – Hólmfríður Þorsteinsdóttir Umhverfisstofnun
Græn skref hjá Skógræktinni – Björg Björnsdóttir, Skógræktin
Græn skref hjá Alþingi – Heiðrún Pálsdóttir, Alþingi
Loftslagsstefna Stjórnarráðsins – Hulda Steingrímsdóttir, Stjórnarráðinu
Plastmálefni – Elva Rakel Jónsdóttir, Umhverfisstofnun
Umhverfisáhrif matvæla – Stefán Gíslason, Environice