Leiðbeiningar um gerð loftslagsstefnu komnar á vefinn
Til að einfalda vinnu við gerð loftslagsstefnu hefur Umhverfisstofnun birt leiðbeiningar sem nálgast má á vef Grænna skrefa.
Samkvæmt lögum um loftslagsmál ber Stjórnarráði Íslands, ríkisstofnunum og fyrirtækjum í meirihlutaeigu ríkis að setja sér loftslagsstefnu. Stefnan skal innihalda markmið um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda og kolefnisjöfnun ásamt aðgerðum til að ná markmiðunum.
Vilji hins opinbera er að fara fram með góðu fordæmi þegar kemur að því að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og þess vegna er mikilvægt að allir leggist á eitt og vinni að metnaðarfullum markmiðum.
Stefnan skal vera tilbúin í árslok 2021 en Umhverfisstofnun hvetur ríkisaðila til að hefjast handa sem fyrst og óskar öllum góðs gengis.