Upplýsingafundur: Spurt og svarað um Grænt Bókhald
Í lok mánaðarins ber öllum stofnunum að hafa skilað inn Grænu Bókhaldi. Af því tilefni sláum við til upplýsingafundar þar sem við munum fara stuttlega yfir bókhaldið en verja síðan góðum tíma í að fara yfir spurningar. Við mælum með að fólk taki frá 35 mínútur í dagbókinni sinni fyrir fundinn til að horfa á kynningarmyndbandið um Grænt bókhald og Gagnagátt Umhverfisstofnunar á vef Grænna skrefa því þar er flestum algengum spurningum svarað.
Grænt bókhald er forsenda þess að stofnanir og fyrirtæki í meirihlutaeigu ríkisins geti sett sér mælanleg markmið um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda í loftslagsstefnu og þess vegna er mikilvægt að allar stofnanir skili.
Upplýsingafundurinn fer fram á:
Mánudaginn 22. mars: 11:00-12:00
Á fundinum munum við einnig sýna hvar þið getið skoðað myndræna framsetningu á skilum síðustu ára, en þá er hægt að bera saman árangur fyrri ára eða bera saman stofnun sína og aðrar stofnanir.
Föstudaginn 26. mars: 13:30-15:00 munum við hafa opið þjónustuborð fyrir stofnanir sem vantar aðstoð á lokametrunum fyrir skil.