Færslur

Skiptimarkaður á Umhverfisstofnun

Í tilefni Evrópsku nýtnivikunnar settu meðlimir teymis græns samfélags hjá Umhverfisstofnun upp skiptimarkað. Öllu starfsfólki býðst að koma með föt og hluti á markaðinn og taka svo það sem þeim líst vel á. Framtakið hefur gengið vonum framar og er fólk bæði duglegt að koma með hluti á markaðinn sem og að framlengja líf annarra hluta. Margir hafa fundið sér ný föt og fína muni til heimilisins og enn fleiri dót, búninga og föt á börnin. Það sem ekki öðlast nýtt líf á skiptimarkaðnum fer í Góða Hirðinn hjá Sorpu eða í fatasöfnun Rauða Krossins.

Með því að setja upp skiptimarkað freistum við þess að lengja líftíma hlutanna og svo er þetta bara ansi skemmtilegt líka! Eftirfarandi punkta sendum við á starfsfólk til að hvetja þá til að taka þátt:

🎅Kjörið tækifæri fyrir jólasveina að skiptast á dóti í skóinn

👗Eru flíkur í fataskápnum ykkar eða barnanna sem gætu öðlast nýtt líf hjá samstarfsfólki?

🤸‍♀️Ef þú ætlar í helgartiltekt um helgina þá er tilvalið að koma með hluti sem þú notar ekki lengur á markaðinn – allir hlutir velkomnir!

🌿Hver veit nema þú finnir jóladressið eða jólagjafirnar á skiptimarkaðnum

gitta

Ýmsir gullmolar leynast á skiptimarkaðnum

75580194 474153410183191 7641874772485210112 n

Gott að standa upp frá tölvunni, fá sér kaffibolla og kíkja á skiptimarkaðinn.

75220635 499350537337024 5716876958768300032 n

Nýtnivikan hefst laugardaginn 16. nóvember

Dagana 16.-24. nóvember næstkomandi stendur Evrópsk nýtnivika yfir en markmið átaksins er að hvetja fólk til að draga úr óþarfa neyslu, nýta hluti betur og draga þannig úr myndun úrgangs. Þema þessa árs er fræðsla og miðlun um úrgangsmál undir slagorðinu Minni sóun – minna sorp. Fyrirtæki, stofnanir og almenningur eru hvött til þess að fræðast um úrgangsmál og koma þeirri þekkingu í framkvæmd með því að breyta daglegum neysluvenjum sínum og draga þannig úr myndun úrgangs.

Á heimasíðu Umhverfisstofnunar má finna alls kyns upplýsingar og fróðleik um úrgangsmál, eins og tölfræði um úrgangsflokka og hvernig okkur gengur að uppfylla sett markmið, stefnu ríkis og sveitafélaga í úrgangsmálum, áhugaverðar upplýsingar um flokkun og endurvinnslu og almenna umfjöllun um neyslu og innkaup. Umhverfisstofnun stendur að viðburðum í tengslum við nýtnivikuna, bæði í Reykjavík og á Akureyri, og má nálgast allar upplýsingar um þá á Facebook síðu átaksins. 

Við hvetjum að sjálfsögðu alla þátttakendur Grænna skrefa til að nýta sér nýtnvikuna og vekja athygli á málstaðnum. Hér að neðan eru hugmyndir að því hvað stofnanir geta gert en ítarlegri leiðbeiningar er að finna hér.

NV mynd inn frtt