Færslur

Vorfundur Grænna skrefa

Senn líður að vorfundi Grænna skrefa, en hann verður haldinn í fjarfundi þann 20. maí næstkomandi kl. 14:00. Á fundinum verður farið yfir helstu fréttir af skrefunum, talað um Græna bókhaldið og gagnagáttina og sýnt hvernig nýja heimasíðan þjónar okkur við innleiðingu verkefnisins. Einnig verður farið yfir skyldu stofnana til að setja sér loftslagsstefnu (sjá 5. gr. c í loftslagslögum) og leiðbeiningar Umhverfisstofnunar þess efnis kynntar.

Starfsmenn Grænna skrefa verða með stutt innlegg um eftirfarandi:

Grænu skrefin – Hildur Harðardóttir

Græna bókhaldið – Birgitta Steingrímsdóttir

Ný heimasíða Grænna skrefa – Þorbjörg Sandra Bakke

Loftslagsstefna ríkisaðila – Ásdís Nína Magnúsdóttir

Fundurinn fer fram í gegnum forritið Teams. Ekki er nauðsynlegt að stofna aðgang til að komast inn á fundinn. Ekki þarf að hlaða niður forriti ef fylgst er með í gegnum vafra, en ef ætlunin er að fylgjast með fundinum í gegnum síma þarf að hlaða niður Teams smáforritinu. Ekki er mælt með að nota Safari vafrann en aðrir vafrar virka vel.

Við stefnum á að hafa kynninguna um 40 mínútna langa og gefa svo gott svigrúm fyrir spurningar en þær verður hægt að bera fram í gegnum spjallvirkni.

Við hvetjum alla þá sem hafa áhuga á Grænu skrefunum að taka þátt, bæði þátttakendur í verkefninu sem og aðra. Þetta er frábært tækifæri til þess að kynna sér Grænu skrefin og læra meira um hvað þátttaka í verkefninu felur í sér fyrir starfsemi ríkisaðila og umhverfið.

Hér er hlekkur á útsendingu fundarins, endilega skráið tímasetninguna í dagatalið: 20. maí kl. 14:00.

Þorbjörg Sandra

Hildur

Ásdís Nína

Birgitta

Svanurinn og hringrásarhagkerfið

Ársfundur umhverfismerkisins Svansins fer fram á Grand Hótel Reykjavík þriðjudaginn 19. nóvember næstkomandi. Á fundinum verður áhersla á hringrásarhagkerfið, þau tækifæri sem liggja í því og hvernig Svanurinn styður fyrirtækin í þeirri vegferð. Við mælum eindregið með því að þátttakendur Grænna skrefa sendi fulltrúa á fundinn og fræðist um Svaninn, hringrásarhagkerfishugsunina, umhverfisstarf Krónunnar og viðhorf Íslendinga til umhverfis- og loftslagsmála. Opnunarávarp flytur Guðmundur Ingi, umhverfis- og auðlindaráðherra. Allir velkomnir – morgunverður í boði! Vinsamlegast skráið þátttöku til þess að koma í veg fyrir matarsóun hér: http://tiny.cc/ofa7fz. Fundinum verður streymt Facebook viðburðinum.

Svanurinn2019

DAGSKRÁ 8:30 – 10:30

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis og auðlindaráðherra
𝐴́𝑣𝑎𝑟𝑝

Elva Rakel Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Svansins á Íslandi
𝑌𝑓𝑖𝑟𝑓𝑒𝑟ð 𝑠𝑡𝑎𝑟𝑓 𝑆𝑣𝑎𝑛𝑠𝑖𝑛𝑠 𝑜𝑔 ℎ𝑒𝑙𝑠𝑡𝑢 𝑎́ℎ𝑒𝑟𝑠𝑙𝑢𝑟 2018-2019

Bjarni Herrera Þórisson, frkvstj. & meðeigandi CIRCULAR Solutions
𝘏𝘳𝘪𝘯𝘨𝘳𝘢́𝘴𝘢𝘳𝘩𝘢𝘨𝘬𝘦𝘳𝘧𝘪ð: 𝘵æ𝘬𝘪𝘧æ𝘳𝘪 𝘰𝘨 𝘢́𝘴𝘬𝘰𝘳𝘢𝘯𝘪𝘳

Birgitta Stefánsdóttir, sérfræðingur Svansins
𝘏𝘷𝘦𝘳𝘯𝘪𝘨 𝘵𝘦𝘯𝘨𝘪𝘴𝘵 𝘏𝘳𝘪𝘯𝘨𝘳𝘢́𝘴𝘢𝘳𝘩𝘢𝘨𝘬𝘦𝘳𝘧𝘪ð 𝘷𝘪ð𝘮𝘪ð𝘶𝘮 𝘚𝘷𝘢𝘯𝘴𝘪𝘯𝘴?

Hjördís Elsa Ásgeirsdóttir, markaðsstjóri Krónunnar
𝘜𝘮𝘩𝘷𝘦𝘳𝘧𝘪𝘴𝘴𝘵𝘢𝘳𝘧 𝘒𝘳𝘰́𝘯𝘶𝘯𝘯𝘢𝘳

Ólafur Elínarson, sviðsstjóri markaðsrannsókna, Gallup
𝘝𝘪ð𝘩𝘰𝘳𝘧 𝘐́𝘴𝘭𝘦𝘯𝘥𝘪𝘯𝘨𝘢 𝘵𝘪𝘭 𝘶𝘮𝘩𝘷𝘦𝘳𝘧𝘪𝘴- 𝘰𝘨 𝘭𝘰𝘧𝘵𝘴𝘭𝘢𝘨𝘴𝘮𝘢́𝘭𝘢