Entries by gre

Menntaskólinn á Tröllaskaga

Hefur skráð sig til þátttöku, við erum mjög glöð að fá fleiri skóla til liðs við okkur, enda svo mikilvægt að unga fólkið okkar læri snemma um umhverfismál.

.

Dómsmálaráðuneytið og samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið ætla saman að vinna að innleiðingu Grænna skrefa. Við hlökkum mikið til samstarfsins 🙂

Isavia Egilsstaðaflugvöllur kominn með tvö skref

Egilsstaðaflugvöllur fengu úttekt og viðurkenningu fyrir annað Græna skrefið. Á vinnustaðnum er mikil samstaða um að gera hlutina vel sama hvort það séu umhverfismál eða annað. Starfsmenn þar ganga líka aðeins lengra og gróðursetja árlega tré á eigin landi. Til hamingu með árangurinn 🙂

Vínbúðin í Vestmannaeyjum hefur lokið öllum fimm skrefunum

Nú á dögunum fór starfsmaður Umhverfisstofnunar í Vestmanneyjum í úttekt hjá Vínbúðinni og veitti þeim viðurkenningu fyrir skref 3, 4 og 5. Vínbúðin í Vestmannaeyjum hefur þar með lokið öllum Grænu skrefunum og munu án efa standa sig vel við að viðhalda þeim.

45 þátttakandinn kominn til leiks

Landsbókasafn Íslands – Háskólasafn er nýr þátttakandi í verkefninu. Safnið sér um söfnun og varðveislu á öllum íslenskum gögnum. Einnig sinnir safnið þjónustu við Háskóla Íslands hvað varðar kennslu og rannsóknir. Á safninu starfa 80 manns og við hlökkum til að vinna með þeim öllum.

RÚV með fræðslu um loftslagsbreytingar

RÚV hefur staðfært og gert aðgengilegt á vefsíðu sinni fræðsluefni um áhrif loftslagsbreytinga á jörðina. Efnið er sett fram á skemmtilega gagnvirkan og einfaldan hátt, upplýsingum sem auðvelt er að miðla áfram. Hversu mikið heldur þú að lofthitinn á jörðinni hafi hækkað frá 1850?

Bílastæði fyrir rafbíla hjá Stjórnarráðinu

Rekstrarfélag Stjórnarráðsins er að ljúka við uppsetningu hleðslustöðva fyrir rafmagnsbíla á bílastæðum sem Rekstrarfélag Stjórnarráðsins hefur umsjón með. Til að byrja með verða 6 bílastæði ætluð til að hlaða rafbíla og verður aðgangur að hleðslustöðvunum opinn þeim sem hafa aðgang að bílastæðum ráðuneytanna, en síðar munu þær verða aðgangsstýrðar og mögulegt gjald innheimt fyrir hleðsluna.

Hljóðbókasafn Íslands er komið með tvö Græn skref

Hún var ánæguleg heimsóknin til Hljóðbókasafnsins enda eru starfsmenn þar afar jákvæðir fyrir verkefninu og hafa innleitt það með bros á vör. Alls konar umræða hefur skapast á kaffistofunni og eru þau spennt fyrir innleiðingu næstu skrefa. Til hamingju með árangurinn 🙂

Hjólastæði er ekki bara hjólastæði

Þegar setja á upp hjólastæði er gott að skoða mismunandi gerðir, staðsetningu og hvað hentar hverjum vinnustað fyrir sig. Hjólreiðamenn mæla sérstaklega með því að settir séu upp hjólabogar enda styðja þeir vel við hjólið og auðvelt er að læsa stellinu við bogann. Gallinn við einfaldar hjólagrindur er sá að gjarðirnar á hjólunum eiga það […]

Fyrsta skref Forsætisráðuneytisins

Innleiðing á fyrsta skrefi Forsætisráðuneytisins tók smá tíma en það er mikill hugur í fólki, svo áður en langt um líður verða örugglega komin fleiri skref hjá ráðuneytinu. Á myndinni eru Sævar Hilmarsson fyrir hönd umhverfisnefndar ráðuneytisins, Kristín Linda Árnadóttir forstjóri Umhverfisstofnunar og Ragnhildur Arnljótsdóttir ráðuneytisstjóri

Fyrsta skrefið hjá Vegagerðinni í Borgarnesi

Til hamingju starfsmenn Vegagerðarinnar, með fyrsta Græna skref starfsstöðvarinnar í Borgarnesi. Þar eru menn samviskusamir í að reyna að finna leiðir til að endurnýta eins vel og hægt er. T.d. þá fá þau notað salt frá fiskvinnslum á Snæfellsnesi til að dreifa á vegina á veturna, einnig eru vegstikurnar margsinnis endurnýttar og þegar það er […]

Plastlaus september í fullum gangi

Hér er um að ræða árvekniátak ætlað að vekja fólk til umhugsunar um ofgnótt og skaðsemi plasts í umhverfinu og benda á leiðir til að draga úr notkun á plasti og einnota plasti. Nánari upplýsingar má finna á vefsíðu átaksins www.plastlausseptember.is