Grænir sveinar koma arkandi til byggða
Það eru ekki bara stofnanir í ríkisrekstri og fyrirtæki í meirihlutaeigu ríkisins sem eru í óðaönn við að taka Græn skref. Jólasveinarnir hafa nefnilega tekið sig í gegn og arka núna grænum skrefum til bæja. Sem hluti af stefnumótunar– og ímyndarvinnu jólasveinanna hafa þeir ákveðið að taka upp ný og grænni nöfn:
- Hleðslustaur kemur fyrstur með rafmagnaða orku
- Ruslaplokka er iðin við að plokka rusl um allar trissur
- Nýtnir passar upp á að endurnota allar umbúðir, föt, mat og annað sem fellur til
- Skammtamælir er mikill nákvæmnismaður sem passar að ekkert fari úr hófi
- Sokkastoppa læðist í sokkaskúffur barnanna á nóttunni og skilur eftir bætta sokka að morgni
- Skefill skefur ekki bara vandlega úr pottunum heldur öllum umbúðum sem hann kemst í tæri við
- Hjólabuna þeysist um bæinn á tryllitækinu sínu
- Leifasvelgur veit ekkert betra heldur en að komast í afganga
- Restafrystir nýtir það sem er eftir þegar bróðir hans er orðinn saddur og hendir í frystinn
- Gluggaþéttir er í óðaönn að þétta alla glugga og loka þeim sem hafa gleymst opnir
- Dekkjaskelfir, óþekktaranginn sá, læðist um og skiptir út nagladekkjum fyrir heilsársdekk
- Pokakrækir krækir sér í plastpoka og skiptir þeim út fyrir margnota poka
- Flöskusníkir fer um allan bæ og sníkir flöskur sem hann gefur svo til styrktar góðra málefna
En ekki nóg með að sveinarnir góðu hafi tekið ímynd sína í gegn, þá hafa þeir líka endurmetið það sem þeir eru að gefa í skóinn. Þeir reyna nú enn fremur en áður að styðja við góðar samverustundir og gefa gagnlegar gjafir. Þeir gefa gjarnan hluti sem hægt er að borða, bera á sig, upplifa eða gjafir sem þeir vita að vantar. Þeir gefa heldur minna en meira. Hér er dæmi um hluti sem leynast í pokanum hjá grænu sveinunum góðu:
- Bíómiði
- Umhverfisvottað freyðibað fyrir káta krakka
- Klassíska mandarínan
- Vettlingar keyptir í nytjamarkaði eða loppu
- Ávaxtastangir
- Margnota gríma
- Kvikmyndaleiga á streymisveitu
- Allt sem þarf til að gera heitt súkkulaði
- Sundmiði
- Hnetur og rúsínur
- Eitthvað heimagert, eins og prjónaðar grifflur eða smákökur
- Lífrænt og siðgæðismerkt súkkulaði
- Gjöf í gegnum hjálparstarf, eins og að ættleiðing á dýri í útrýmingarhættu, handsápa fyrir þurfandi börn, eða hænur fyrir þurfandi fjölskyldur