Það er óbragð af matarsóun – Evrópsk nýtnivika að hefjast
Dagana 16.-24. nóvember næstkomandi stendur Evrópska nýtnivikan og sem fyrr hvetjum við alla þátttakendur í Grænum skrefum til að taka þátt. Markmið átaksins er að hvetja fólk til að draga úr óþarfa neyslu, nýta hluti betur og draga þannig úr myndun úrgangs.
Matarsóun í brennidepli í ár
Þema ársins er matarsóun undir slagorðinu Það er óbragð af matarsóun! Sérstök áhersla er lögð á nýtingu afganga og eru fyrirtæki, sveitarfélög, stofnanir, skólar og almenningur hvött til þess að leggja sitt af mörkum til að sporna gegn matarsóun með því að gefa afgöngunum gaum.
Matarsóun á Íslandi jafngildir um 160 kílóum á hvern íbúa á ári. Tæpur helmingur allrar matarsóunar á sér stað í frumframleiðslu matvæla en um 40% á heimilum. Lágmörkun matarsóunar er loftslagsmál, efnahagsmál og mikilvægur þáttur í innleiðingu hringrásarhagkerfisins.
Það eru ýmsar leiðir færar til að vekja athygli á matarsóun og nýtingu afganga og bendum við á fræðsluefni Saman gegn sóun sem finna má t.d. hér og fyrir atvinnulífið hér. Þar má finna umfjallanir um afganga, geymsluaðferðir og uppskriftir gegn sóun svo eitthvað sé nefnt.
Vinnustaðir geta t.d. lagt sérstaka áherslu á að elda úr afgöngum eða leyfa starfsfólki að taka afganga heim. Einnig hvetjum við ykkur í Grænu skrefunum að nýta tækifærið í Nýtniviku og fara í matarsóunarmælingar á vinnustaðum. Hér finnið þið myndband úr slíkri mælingu hjá Umhverfisstofnun og undir Vinnugögn má finna excel skjal sem auðveldar skráningu, leiðbeiningar fyrir mötuneyti, kynningu og myndband með húsráðum. Svo má ekki gleyma að skrá niðurstöðurnar í Græna bókhaldið.
Kynningarefni sem öll geta nýtt sér
Saman gegn sóun og Reykjavíkurborg hafa útbúið einfalt kynningarefni sem nýtist öllum þeim sem vilja taka þátt í Nýtnivikunni í ár:
Saman gegn sóun – matarsóun í atvinnulífinu
Hverskonar nýtni í hávegum höfð
Það er um að gera að gefa hugmyndafluginu lausan tauminn í Nýtnivikunni; halda viðgerðarkaffi, skiptimarkaði, fyrirlestra, kynna nýjar lausnir eða hvað eina sem styður við minni sóun, sama af hvaða tagi hún er.
Kynningar- og fræðsluefni fyrri ára
Sóun er dottin úr tísku – plakat og leiðbeiningar um fataskiptimarkaði
Höfum það umbúðalaust – leiðbeiningar fyrir söluaðila um afgreiðslu matvæla í ílát viðskiptavina
Höfum það umbúðalaust – leiðbeiningar fyrir neytendur um notkun fjölnota umbúða
Það sem ekki sést – fyrirlestraröð, erindi frá Jukka Heinonen, Hrefnu Björgu Gylfadóttur og Árna Jóni Eggertssyni.
Fylgist endilega með Saman gegn sóun á Facebook og Instagram.